Monday, February 29, 2016

Undanrásir fyrir Reykjavík barnablitz 2016

Undankeppni fyrir Reykjavík Barna Blitz verður miðvikudaginn 2. mars kl. 17.15 í Víkingsheimilinu
Mótið er opið skákmönnum fæddum 2003 og síðar.
Tefldar verða sex umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Tveir efstu komast í úrslitin sem verða tefld verða samhliða Reykjarvíkurskákmótinu í Hörpu, sunnudaginn þrettánda mars klukkan 11:00.
Til mikils er að vinna því einungis átta keppendur fá þátttökurétt á sjáfri úrslitakeppninni, þar af eru tveir frá móti Víkingaklúbbsins.  Hin félögin í Reykjavík sem halda undanrásir eru Skákdeild Fjölnis, Taflfélagið Huginn og Taflfélag Reykjavíkur.
Skráning á mótið sendist á netfangið vikingaklubburinn(hjá)gmail.com.