Tuesday, July 12, 2016

Kringluskákmótið 2016

AtH:  Kringluskákmótið sem átti að vera fimmtudaginn 15. september, færist til 22. september á sama stað og á sama tíma.

Kringluskákmótið 2016 fer fram fimmtudaginn 22. september, og hefst það kl. 17:00. Mótið fer fram í Kringlunni, en að mótinu stendur Víkingaklúbburinn skákfélag, með aðsetur í Víkingsheimilinu í Víkinni, í samstarfi við markaðsdeild Kringlunnar.  Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar muni taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu i ágúst. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is (Guli kassinn). Hámarkfjöldi keppenda er 40 manns og því er ekki hægt að tryggja þátttöku nema að skrá sig til leiks. Einnig er hægt að skrá sig í síma 8629744 (Gunnar).  Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppendur draga fyritækjaspjald úr hatti, sem keppandinn síðan teflir fyrir í mótinu.  Skráningu líkur kl 12.00 að hádegi á mótsdag. Tefldar verða 8 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma.  

1. verðlaun 15.000 kr.

2. verðlaun 10.000 kr 

3. verðlaun 5000 kr.  

Sigurvegarinn mótsins hlýtur titilinn Kringuskákmeistari 2016 og forlátan verðlaunagrip að auki. Núverandi Kringlumeistari er Björn Þorfinnsson, sem telfdi fyrir hið íslenska reðursafn.   Skákstjórar á mótinu verða Haraldur Baldursson og Kristján Örn Elíasson. 

Úrslit Kringlumótsins 2015 hér: og hér:
Kringlumóitið 2015, myndaalbúm hér: