Wednesday, August 30, 2017

Alþjóðameistarinn Björn Þorfinnsson gengur í Víkingaklúbbinn

Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson hefur gengið aftur í Víkingaklúbbinn.  Björn var áður félagi í Taflfélagi Reykjavíkur þrjú síðustu ár, en var félagsmaður Víkinga árin 2012-14 og varð Íslandsmeistari með félagaginu 2013 og 2014.  Fór meðalannars með Víkingum á Evrópumót Taflfélaga á Ródos árið 2013.  Björn hefur náð tveim stórmeistaraáföngum og stefnir á að tefla með Víkingum á Evrópumóti taflfélaga í Tyrklandi í október næstkomandi og á Íslandsmóti skákfélaga í vetur.

Saturday, August 26, 2017

Kringlumótið 2017 úrslit

Omar Salama sem telfdi fyrir Sjóva sigraði á Kringluskákmótinu sem fram fór fimmtudaginn 24. ágúst. Omar fékk 6.5 vinninga af sjö mögulegum og leyfði aðiens eitt jafntefli gegn hinum unga Gauta Páli Jónssyni í siðustu umferð.  Annar varð alþjóðameistarinn Björn Þorfinsson sem telfdi fyrir Bónus Kringlunni með 6 vinninga af 7. mögulegum.  Þriðji varð svo Gauti Páll Jnsson sem telfdi fyrir Jón og Óskar.  Efstur Víkinga varð Gunnar Fr Rúnarsson með 5 vinninga og hlýtur hann því titilinn Hraðskákmeistari Víkingaklúbbsins. 2017.  Efst kvenna varð Lenka Ptcnikova. Gunnar Eric Guðmundsson varð efstur drengja og Sofía Berndsen varð efst stúlkna.  Alls tóku 45 keppendur og 29 fyrirtæki þátt í mótinu.  Telfdar voru 7. umferðir með 7. mínútna umhugsunartíma og skákstjóri var Kristján Örn Elíasson.

Úrslit Opinn flokkur:  1. Omar Salama 2. Björn Þorfinnsson 3. Gauti Páll Jónsson
 
Úrslit konur:

1. Lenka Ptcnikova
2. Veronika Steinunn Magnúsdóttir
3. Sofía Berndsen
Úrslit drengir:

1. Gunnar Erik Guðmundsson
2. Benedikt Þórisson
3. Bjartur Þórisson
Úrslit stúlkur:

1. Sofía Berndsen
2. Anna Katarína Thoroddsen 3. Bergþóra Helga Gunnarsdóttir
Mótið á chess-Results hér:


Thursday, August 10, 2017

Kringluskákmótið 2017

Kringluskákmótið 2017 fer fram fimmtudaginn 24 ágúst, og hefst það kl. 17:00. Mótið fer fram í Kringlunni, en að mótinu stendur Víkingaklúbburinn skákfélag, með aðsetur í Víkingsheimilinu í Víkinni, í samstarfi við markaðsdeild Kringlunnar.  Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar muni taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is (Guli kassinn). Hámarkfjöldi keppenda er 40 manns og því er ekki hægt að tryggja þátttöku nema að skrá sig til leiks. Einnig er hægt að skrá sig í síma 8629744 (Gunnar). Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppendur draga fyritækjaspjald úr hatti, sem keppandinn síðan teflir fyrir í mótinu.  Skráningu líkur kl 12.00 að hádegi á mótsdag. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.  Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. 


1. verðlaun 15.000 kr.
2. verðlaun 10.000 kr. 
3. verðlaun 5000 kr.  


Sigurvegarinn mótsins hlýtur titilinn Kringuskákmeistari 2017 og forlátan verðlaunagrip að auki.  Þrjár efstu konur og þrjú efstu ungmenni 12. ára og yngri (fædd 2005 og yngri) fá sérstök verðlaun (Verðlaunagrip fyrir efsta sætið og verðlaunapeningur fyrir annað og þriðja sætið).  Núverandi Kringlumeistari er Ingvar Þór Jóhannesson, sem telfdi fyrir Verkís.   Skákstjórar á mótinu verða Haraldur Baldursson og Kristján Örn Elíasson. 

Úrslit Kringlumótsins 2015 hér: og hér:
Kringlumóitið 2015, myndaalbúm hér:
Úrslit Kringlumótsins 2016 hér: