Saturday, October 20, 2012

Víkingaskákæfing

Tómas Björnsson Goði kom sá og sigraði á Reykjarvíkurmótinu í Víkingaskák sem fram fór í Víkinni miðvikudagskvöldið 17. október. Goðinn sló við öllum Víkingum í Víkinni við, enda gamall Víkingur sjálfur. Tómas hefur nú hugsað sér að ná efsta sætinu á heimslista Víkingaskákmanna, en Gunnar Fr trónir enn stigahæstur. Tómas fékk 5.5 v. af 6, en Gunnar Fr varð annar með 4.5 af 6 mögulegum.  Tómas vann allar sínar skákir og leyfði i eitt jafntefli í seinni skákinni gegn Gunnar Fr.  Tefld var tvöföld umferð allir við alla og umhugsunartíminn var 10. mínútur á skákina.

 Úrslit:

1. Tómas Björnsson 5.5 vinningar.
2. Gunnar Fr. Rúnarsson 4.5 v.
3. Sigurður Ingasons 1. v.
4. Þröstur Þórsson 1.v.

Nýjustu víkingaskákstigin hér:

Barnaæfing 17. október

Víkingaklúbburinn og Knattspyrnufélagið Víkingur héldu aðra skákæfingu fyrir börn og unglinga miðikudaginn 17. október. Æfingin var vel sótt eins og sú fyrri. Börn frá Breiðagerðisskóla og Fossvogskóla mættu beint af fótboltaæfingu eða frístundaheimili á skákæfinguna í Víkinni. Nokkrir krakkar komu þó annars staðar frá, m.a einn stórefnilegur 6. ára gutti úr Grafarholtinu. Leiðbeinendur á æfingunni voru Gunnar Fr. Rúnarsson og Sigurður Ingason.




Pistill formanns

1. deild Íslandsmót skákfélaga fyrri hluti lauk um þarsíðustu helgi. Tefldar voru fjórar umferðir af sjö, en síðustu þrjár umferðirnar verða tefldar í mars á næsta ári. Víkingaklúbburinn sendi nú þrjú öflug lið til keppni. Víkingaklúbburinn náði að styrkja sig frá síðasta tímabili, enda var búist við að keppni í 1. deildinni yrði geysihörð. Thegar líða fór á sumarið varð ljóst að hörkuskáḱmenn væru tilbúnir að ganga til liðs við félagið. Fyrstur kom altjóðlegi meistarinn Björn Þorfinsson, síðar komu m.a Hannes Hlífar Stefánsson, Stefán Kristjánsson, Þorvarð Fannar Ólafsson, Hrannar Baldursson og nokkra geysiöflugir útlendingar. Framundan var geysierfitt og krefjandi verkefni. Formaður klúbbsins hugsaði margoft um verkefnið sem framundan var og leiddi oft hugan að þeim kaleik sem félagið hafið nú fengið í hendur. Til greina kom hreinlega að vera ekki með í geðveikinni. Fyrr um vorið höfðum við séð sjálft spútninklið Máta falla niður um deild með sjálfan Gwain Johns sem stafnmann. Sumarið fór svo í að kanna möguleika á styrkingu. Þegar Björn Þorfinnsson og Hannes Hlífar höfðu gengið til liðs við klúbbinn, þá varð ljóst að atlaga að sjálfum titlinum varð möguleiki. Davíð Kjartansson hafði náð að safna nokkrum erlendum "vélum" í liðið og sá stigahæsti var öðlingurinn Pavel Eljanov, sem fyrir stuttu var 6. stigahæsti skákmaður heims með 2761 skákstig. 4. október var svo ljóst að útlendingarnir hefðu skilað sér til landsins hressir og kátir og föstudaginn 4. október í hádeginu héldum við öflugan liðsfund á Glætunni við Laugaveg þar sem hin liðin voru kortlögð. Sú saga hefði breiðst út um morguninn að TR liðið sem við mættum í fyrstu umferð væri með Margeir Pétursson á 7. borði og Friðrik Ólafsson á 8. borði. Hrikaleg keppni var því að hefjast.

 1. umferð: Víkingaklúbburinn - TR 3.5 - 4.5

 TR sveitin var mjög sterk og heppnin var heldur ekki í liði með okkar. Friðrik Ólafsson náði að vinna Magnús Örn á 8. borði og Bartosz Socko tapaði fyrir Oleksienko á öðru borði, en Stefán Kristjánsson náði að vinna TR-inginn Karl Thorsteins á 6. borði. Vissulega voru þessi úrslit vonbriggði, en TR liðið var ofursterkt, en þó var hægt að sjá að þeir myndu ekki geta stillt upp svona sterku liðið í öllum umferðum sem síðar átti eftir að koma í ljós. Núna var að duga eða drepast í næstu umferð gegn sterkasta liðinu Bolum. Slæm úrslit þar myndu gera vinningsmöguleika liðsins í keppnina nánast að engu. Reyndar hugsaði formaðurinn að fall væri fararheill, því fyrir um tveim árum tapaði Víkingaklúbburinn í 1. umfeðir 1-5 fyrir B-sveit KR í fyrstu umferði í 4. deild. En eftir harða keppni vann svo Víkingaklúbburinn deildina. 

2. umferð: Taflfélaga Bolungarvíkur - Víkingaklúbburinn 4 - 4

Þessi viðureing var geysihörð og salurinn gjörsamlega nötraði. Eljanov tapaði í 1. borði og Björn á 7. borði. Stefán náði hins vegar að vinna aftur og Dziuiba náði að vinna sinn andstæðing á 4. borði. Bartosz Socko á 2. borði var langt kominn með að vinna sína skák, en hún endaði með jafntefli og viðureignin fór því jafntefli, sem voru alls ekki svo slæm úrslit við öflugasta lið keppninnar. Núna var dagskipunin bara að reyna að vinna næstu viðureignir með sem mestum mun og vera áfram inni í keppninni.

 3. umferð: Víkingaklúbburinn - Hellir 7.5 - 0.5

Þessi viðureign fór mjög vel. Taflfélagið Hellir eru reyndar ekki eins sterkir og siðustu ár, en eru samt alltaf stórhættulegir með sitt reynslumikla lið eins og önnur úrslit þeirra í keppninni benda til. Stórsigur í þessari viðureign bætti stöðu Víkingaklúbbsins í keppni þeirra bestu mikið og Elianov náði m.a að vinna hinn geysiöfluga Hjörvar á fyrsta borði, en Björn gerði jafntefli á 7. borði.

4. umferði:  Taflfélaga Bolungarvíkur-B - Víkingaklúbburinn 1 - 7

Guðmundnur Daðason á 7. borði náði að vinna Björn, en hinar skákirnar unnust allar. Bolar voru með IM Dag Arngrímsson sem var á fyrsta borði og Guðmundur Gísla á 2. borði. Magnús Örnólfsson á 4. borði átti sennilega jafntefli gegn Dzuiba á 4. borði, en Pólverjinn náði að sigra á endanum.

 Að lokum

Víkingaklúbburinn er í 2. sæti eftir fyrri hluta keppninnar aðeins hálfum vinningi á eftir Bolungarvík. Taflfélaga Reykjavíkur kemur svo rétt á eftir og Vestmannaeyjar sem eru enn í baráttunni um titilinn eru í fjórða sæti. Þrjár síðustu umferðir keppninnar í Hörpu verða æsispennandi og ómögulegt er að spá um úrslit. Víkingaklúbburinn á eftir að mæta: Akureyri, Goðum Mátum og Vestmannaeyjingum.

 Framistaða einstakra liðsmanna:

 (GM) Pavel Eljanov-2685 elo tefldi allar skákirnar og stóð sig með prýði og fékk (2.5 af 4)

 (GM) Bartosz Socko fékk (2.5 af 4)

 (GM), Grzegorz Gajewski fékk (2.5 af 4)

 (GM), Marcin Dziuba fékk (3 af 4)

 (GM), Hannes Hlífar Stefánsson fékk (3.5 af 4)

 (GM), Stefán Kristjánsson fékk (4 af 4)

 (IM), Björn Þorfinsson (0.5 af 4)

 (FM), Magnús Örn Úlfarsson (1.5 af 3)

 (FM), Davíð Kjartansson fékk (1.0 af 1)

  Úrslit á Chess-Results hér:

















Thursday, October 4, 2012

Fyrsta unglingaskákæfingin í Víkingsheimilinu!

Knattspyrnufélagið Víkingur og Víkingaklúbburinn heldu fyrstu barna og unglingaskákæfingu sína í Víkinni miðvikudaginn 3. október. Krakkar úr frístundaheimilum og skólum í hverfinu mættu og komu um 15 krakkar á fyrstu æfinguna. Krakkarnir voru bæði úr Breiðagerðisskóla og Fossvogskóla og heppnaðist æfingin mjög vel. Leiðbeinendur á æfingunni voru reynluboltarnir Svavar Viktorsson og Haraldur Baldursson, en Gunnar Fr. Rúnarsson rifjaði upp gamla takta, en hann hafði ekki kennt skák síðan hann var skákkennari við Ártúnskóla árið 1993.




Ólafur B. Thorsson atskákmeistari Víkingaklúbbsins 2012

Ólafur B. Thórsson varð á miðvikudagskvöldið annar atskákmeistari Víkingaklúbbsins. Mótið fór fram í Víkingsheimilinu og 8. keppendur tóku þátt í bráðfjörugu móti, en umhugsunartíminn var 15. mínútur á skák, en tefldar voru 4. umferðir með 15. mínútum, en fyrstu 3. umferðir voru tefldar með 5. mínútna umhugsunartíma. Sigurstanglegastur fyrirfram var fidemeistarinn Ólafur B. Þórsson og honum tókst að standa undir nafni og vinna allar skákir sínar.  Annar kom Gunnar Fr Rúnrsson með 5. vinninga.  Stefán Thór Sigurjónsson og Sigurður Ingasons komu næstir með 4. vinninga, en Stefán fékk bronsið eftir stigaútreikning.  ´Ólafur og Gunnar Fr. mættust í næstsíðustu umferð.  Gunnar hafði leyft tvö jafntefli, en Ólafur var með fullt hús.  Lengi framan af stóð Gunnar betur, en fataðist flugið í tímahrakinu og Ólafur náði að sigra. 

 Úrslit:

1. Ólafur B. Thórsson 7 v af 7.
2. Gunnar Fr. Rúnarsson 5.0
3. Stefán Thór Sigurjónss 4.0
4. Sigurður Ingasons 4.0
5. Jónas Jónasson 3.5
6. Sturla 3.0
7 Svavar Viktorsson 0.5







Monday, October 1, 2012

Atskákmeistaramót Víkingaklúbbsins 2012

Atskákmeistaramót Víkingaklúbbsins verður haldið miðvikudaginn 3. október og hefst taflið kl. 20.00.  í Víkinni Víkingsheimilinu.  Knattspyrnufélagið Víkingur og Víkingaklúbburinn verða í samstafi með skákæfingar veturinn 2012-2013.  Tefldar verða 6 umferðir með fimmtán mínútna umhugsunartíma. Æfingar verða framveigis hálfsmánaðarlega (Víkingaskák og skák til jafns) og m.a verður stórt hraðskákmót í desember. Verðlaunagripir verða fyrir þrjú efstu sætin og einnig sérstök unglingaverðlaun. Mótið er opið öllum skákmönnum.  Stefán Þór Sigurjónsson er núverandi atskákmeistari Víkingaklúbbsins.

Úrslit Atskákmóts Víkingaklúbbsins 2011 hér:
Myndir frá mótinu í fyrra