Kringlumót Víkingaklúbbsins. Efstir međ 6.5 vinninga af 7 urđu Björn Þorfinnsson og Róbert Lagerman. Björn var hærri á stigum og vann því mótiđ í þriđja skipti. Arnar Hreiđarsson varđ þriđji. Gunnar Gunnarsson sigrađi í flokki 65. ára og eldri. Nánar úrslit hér: https://chess-results.com/tnr825658.aspx?lan=1&art=4
Friday, May 31, 2024
Kringlumót 2022 úrslit
Kringlumótið 2022 (Hamborgarafabrikkumótiđ 2022) var haldiđ í Kringlunni síđasta miđvikudag 27. april 2022. 14 keppendur tóku þátt. Mótið var fjáröflunarmót fyrir skákdeildina. Tefldar voru 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 plús 2. Sigurvegari varđ Jóhann Hjartarson (Íslensk erfđargreining). Annar varđ Tómas Björnsson (Malbikunarstöðin) og þriđji varđ Gunnar Fr. Rúnarsson (Bæjarbakarí). Efst kvenna varð Lisseth Mendez (Guðmundur Arason smíðajárn). Skákstjóri á mótinu var Páll Sigurðsson. Nánari úrslit hér: https://chess-results.com/tnr632255.aspx?lan=1&art=5
Thursday, September 21, 2023
Kringluskákmótið 2023
Kringluskákmótið 2023 fer fram fimmtudaginn 28 september, og hefst það kl. 16:30. Mótið fer fram í Kringlunni, en að mótinu stendur Víkingaklúbburinn skákfélag, með aðsetur í Víkingsheimilinu í Víkinni, í samstarfi við markaðsdeild Kringlunnar. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is(Guli kassinn).
Hámarkfjöldi keppenda er 30 manns og því er ekki hægt að tryggja þátttöku nema að skrá sig til leiks. Einnig er hægt að skrá sig í síma 8629744 (Gunnar). Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppendur draga fyritækjaspjald úr hatti, sem keppandinn síðan teflir fyrir í mótinu. Skráningu líkur kl 12.00 að hádegi á mótsdag. Tefldar verða 9 umferðir með 3 2 mínútur í umhugsunartíma. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Sigurvegarinn mótsins hlýtur titilinn Kringuskákmeistari 2023 og forlátan verðlaunagrip að auki. Þrjár efstu konur og þrjú efstu ungmenni 15. ára og yngri og þrjár efstu í stúlkur 15. ára og yngri fá sérstök verðlaun (Verðlaunagrip fyrir efsta sætið og verðlaunapeningur fyrir annað og þriðja sætið). Núverandi Kringlumeistari er Jóhann Hjartarson (2022), sem telfdi fyrir Decode. Skákstjórar á mótinu verða Haraldur Baldursson og Kristján Örn Elíasson.Kringlumeistari 2015: Björn Þorfinnsson
Kringlumeistari 2016: Ingvar Þór Jóhannesson
Kringlumeistari 2017: Omar Salama
Kringlumeistari 2018: Vignir Vatnar Stefánsson
Friday, December 4, 2020
Víkingaklúbburinn á facebook
Við erum að mestu komin á facebook með fréttir af skákstarfi okkar. Þangað til annað kemur í ljós. Þið finnið grúbbuna undir Víkingaklúbburinn.
Thursday, October 1, 2020
Golfmót Víkingaklúbbsins 2020
Meistaramót Víkingaklúbbsins í golfi 2020 verður haldið á Gufudalsvelli Hveragerði (Mýrinni Garðabæ til vara), sunnudaginn 4. október og hefst mótið kl:12.30. Mæting kl. 12.00. Spilaðar verða 18 holur og keppt verður bæði í höggleik án forgjafar og punktakeppni með fullri forgjöf. Sigurvegarinn í höggleik hlýtur sæmdarheitið: Golfmeistari Víkingaklúbbsins 2020.
Um kl. 16.00 verður skákmót í golfskála, þar sem fer fram 5. mínútna hraðskákmót (9. umferðir), þar sem keppt verður í samanlögðum árangri í golfskák, með og án forgjafar. Nánari upplýsingar um mótið gefur Gunnar Fr. Rúnarsson (gsm: 8629744).
Sunday, March 1, 2020
Stjórn Víkingaklúbbsins
Monday, February 3, 2020
Skákmenn ársins 2019 hjá Víkingaklúbbnum.
Ritstjórinn og formaðurinn óskar öllum Víkingaskákmönnum gleðilegs árs og friðar og von um farsæld og gott gengi í leik og starfi.
Ritað 3. febrúar 2020 á Hringbraut
Gunnar Fr Rúnarsson
formaður
