Ritstjóri hefur valið skákmenn ársins hjá Víkingaklúbbnum fyrir árið 2017. Í Víkingaskákinni varð valið nokkuð snúið þar sem færri Víkinaskákmót voru haldin árið 2017 en undanfarin ár. Sveinn Ingi Sveinsson var valinn Víkinaskákmaður ársins eftir framistöðu sína á Íslandsmótinu þar sem hann endaði fremstur meðal jafningja. Skákmaður ársins hjá Víkingaklúbbnum er hinn efnilegi Einar Dagur Brynjarsson. Einar sem fæddur er árið 2009, hefur verið mjög duglegur að mæta á æfingar í vetur, ekki bara í Víkinni, heldur einnig hjá Huginn og TR, auk þess sem hann hefur verið duglegur að mæta á mót. Einar varð m.a í öðru sæti á Íslandsmóti barna í sínum aldursflokki og varð efstur ásamt öðrum á Jólapakkamóti Hugins fyrir jól.
Ritstjórinn og formaðurinn óskar öllum Víkingaskákmönnum gleðilegs árs og friðar og von um farsæld og gott gengi í leik og starfi.
Ritað 1. janúar 2018 í Sóltúni.
Gunnar Fr Rúnarsson
formaður
Monday, January 1, 2018
Subscribe to:
Posts (Atom)