Wednesday, December 30, 2015

Úrslit á Jólamóti Víkingaklúbbsins 2015, Tómas Björnsson og Sveinn Ingi Sveinsson Jólavíkinga Víkingaklúbbsin 2015. Gunnar Fr. sigraði í Tvískákinni.

Tómas Björnsson og Sveinn Ingi Sveinsson sigruðu á Jólamóti Víkingaklúbbsins sem haldið var í húsnæði Skáksambands Íslands miðvikdaginn 30. janúar.  

Tómas Björnsson sigraði á skákmótinu eftir að hafa verið í hörkubaráttu við Ólaf B. Þórsson, Lenku, Pál Agnar og fleirri.  Tómas hlaut 6. vinniga úr 7. skákum, en Páll Agnar Þórarinsson og Ólafur B. Þórsson urðu í 2-3 sæti.
Keppendur í skákinni voru 16, en tefldar voru 7. umferðir, þar sem tímamörk voru 5. mínútur.  

Í Víkingaskákinni sigraði Sveinn Ingi Sveinsson með 6. vinninga af 7. mögulegum.  Sigurður Ingason veitti honum harða keppni um efsta sætið og endaði með 5.5 vinninga í öðru sæti.  Þriðji varð Gunnar Fr. Rúnarsson. Gaman var að sjá nýja keppendur mæta til leiks, eins og Gauta Pál Jónsson og Mai bræður.  Guðlaug Þorsteinsdóttir reyndi einnig fyrir sér í Víkingaskák í fyrsta skipti og hafði gaman að.  Gauti Páll stóð sig frábærlega á sínu fyrsta móti og hneppti unglingaverðlaun, eins og Lenka sem hneppti kvennaverðlaunin, en hún var að prófa skákina í þriðja skipti.  Keppendur í  Víkingaskákinni voru þrettán, en tefldar voru 7. umferðir, þar sem tímamörk voru 7. mínútur á skákina.

Á mótinu var einnig keppt um titilinn Íslandsmeistari í tvískák, en sérstakur bikar var fyrir besta árangur í báðum mótunum. Gunnar Fr. Rúnarsson varð efstur þar með 9.5 vinninga, en næstir komu Páll Agnar og Ólafur B. Þórsson með 9. vinninga.

Úrslit í hraðskákmótinu:

  1  Tómas Björnsson  5.5 af 7    
  2  Ólafur B. Þórsson 5.0      
  3  Páll Agnar Þórarinsson  5.0  
  4  Gauti Páll Jónsson 4.5    
  5  Gunnar Fr. Rúnarsson 4.5     
  6  Lenka 4.0  
  7  Guðlau  4.0
  8  Sigurður Ingason 3.5      
  9  Jón Árni  3,5  
  10  Óskar 3.5   
  11  Aron Mai 3.5     
  12  Halldór Pálsson 3.0
  13 Alexander Mai 2.5
  14. Sturla Þórðarson 2.0
  15. Arnaldur Bjarnason 1.0
  16. Halldór Kristjánsson 1.0  
                                   

Úrslit í Víkingahraðskákinni:


 1.   Sveinn Ingi Sveinsson  6.0 af 7 
 2.   Sigurður Ingason 5.5                 
 3 .  Gunnar Fr. Rúnarsson 5.0
 4    Sturla 4.0  
  5   Lenka 4.0
  6   Páll 4.0
  7   Ólafur 4.0
  8  Gauti 3.5     
  9  Tómas 3.0 
  10  Aron 3.0  
  11  Halldór 2.5    
  12  Alexander 2.5
  13 Guðlaug 2.0

Úrslit í Tvískákmótinu:


1. Gunnar Fr. Rúnarsson   9.5 v. 
2. Ólafur B. Þórsson 9                 
3. Páll Agnar 9
4. Sigurður Ingason 9
5. Tómas Björnsson 8.5
osf...

























Sunday, December 27, 2015

Jólamót Víkingaklúbbsins 2015

Jólamót Víkingaklúbbsins verður haldið miðvikudaginn 30. des í húsnæði Skáksambands Íslands og hefst það kl 19.30. Teflt verður bæði skák og Víkingaskák. Fyrst 7. umferða skákmót með 5 mínútna umhugsunartíma, en eftir það verða 7. umferðir í Víkingaskák, þs 7 umferðir 7. mínútur.  Verðlaun í boði fyrir þrjú efstu sæti og ókeypis veitingar, m.a Víkingamjöður.  Ekki er nauðsynlegt að taka þátt í báðum mótunum og þeir sem ætla að tefla einungis Vîkingaskák mæta ekki seinna en kl 21.30.  Víkingaskákmótið er jafnframt Ìslandsmótið í Víkingahraðskák.  Einnig eru veitt sérstök verðlaun fyrir besta árangur í báðum mótunum, en sá sem er með besta árangurinn úr báðum mótunum er jafnframt Íslandsmeistari í tvískák.

Sérstök aukaverðlaun fyrir Víkingaskák:  1. sæti:  8000, 2. sæti 6000, 3. sæti 4000, 1. sæti kvenna:  4000,  1. sæti unglinga 4000.

Skráning á mótið fer m.a fram á netfangið: vikingaklubburinn(hjá)gmail.com

Mótið 2014 hér:
Mótið 2013 hér:
Mótið 2012 hér:
Mótið 2011 hér: 
Mótið 2010 hér:
Mótið 2009 hér:

Friday, December 18, 2015

Thursday, December 17, 2015

Íslandsmótið í Víkingaskák 2015

Íslandsmótinu í Vîkingaskák lauk fimmtudaginn 17. desember í húsnæði Skáksambands Íslands. Landsliðsflokkur Tefldar voru 6. umferðir með 10. mínútna umhugsunartíma.

Landsliðsflokkur úrslit:

* 1 Gunnar Fr Rúnarsson 5.0
* 2 Ingi Tandri Traustason 4.5
* 3 Sveinn Ingi Sveinsson 4.5
* 4 Ólafur B. Þórsson 4.0
* 5 Tómas Björnsson 3.5
* 6 Stefán Þór Sigurjónsson 3.0
* 7 Sturla Þórðarson 3.0
* 8 Sigurður Ingason 2.0
* 9 Guðrún Ásta Guðmundsdóttir 2.0
* 10 Þröstur Þórsson 2.0
* 11 Lenka Ptacnikova 1.0
* 12 Halldór Ólafsson 1.0

Íslandsmeistari karla 2015: Gunnar Fr Rúnarsson
Íslandsmeistari kvenna 2015: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir











Saturday, December 12, 2015

Jólamót Víkingaklúbbsins 2015 úrslit

Jólamót Víkingaklúbbsins fór fram miðvikudaginn 9. desember í Víkinni.  Alls tóku 41 keppandi þátt, en keppt var í þrem flokkum.  Upphaflega áttu aldursflokkarnir að vera fjórir með peðaskák, en þar sem skákstjórarnir voru bara tveir á endanum, þá var bara keppt í tveim flokkum, en hver aldursflokkur fengi verðlaun sérstaklega.  
Í eldri flokki voru tefldar 5. umferðir með 7. mínútna, en í yngri flokki voru telfdar 4. umferðir með sömu tímamörukum.

Í eldri flokki sigraði Alexandir Mai með 5 vinninga af 5 mögulegum.  Næstur kom bróðir hans Aron Mai með 4.5 vinninga.  Róbert Luu náði þriðja sæti með 4.5 vinninga en var lægri á stigum en Aron Mai.  Efstur Víkinga varð Jón Hreiðar með 3. vinninga.  Gabríel Sær varð efstur í aldursflokknum 2006 og Adam Ómarsson varð efstur í aldursflokknum 2007, en hann fékk skráð röng úrslit í fyrstu umferð, sem nú er búið að leiðrétta (átti að fá hálfan vinning fyrir "bye" í fyrstu umferð en fékk ekki).

Í yngri flokki sigraði hinn bráðefnilegi Bjartur Þórsson (fæddur 2009) eftir hörku baráttu við jafnaldra sinn Einar Brynjarsson.  Báðir þessi piltar eru bráðefnilegir og undirritaður var vitni að innbyrgðis skák þeirra, þar sem staðan var nokkuð tvísýn og var Einar kominn með yfirhödnina, en lék sig svo óvænt í mát.  Í þriðja sæti varð J'on Sigurður efnilegur nemandi úr Ingunnarskóla.  Í fjórða til fimmta sæti urður Bergþóra Helga og Jóna María og varð Bergþóra hærri á stigum (vann innbyrgðis viðureign).  


Skákstjórar voru Stefán Bergsson í eldri flokki og Gunnar Fr. og Sigurður Ingason í yngri flokki.  Lenka Ptacnikova stjórnaði peðaskákinni.  

Eins og áður sagði urðu smá breytingar á flokkunum og eiga því nokkrir enn eftir að fá verðlaun fyrir besta árangur (árgangaverðlaun).
Barnaæfingar Víkingaklúbbsins eru nú komnar í jólafrí, en hefjast aftur 7. janúar og verða vikulega fram á vor. M.a er stefnt að tveim stórum barnamótum eins og þessu ári þs, páskamótið og vormótið.

Eldri flokkur úrslit:

1. Alexander Mai 5v. af 5
2. Aron Mai 4. 5. v
3. Robert Luu 4.5. v
4. Gylfi Már 4.v
5. Alexander Már 4.v
6. Adam Omarsson 3.5.v
7. Gabríel Sær 3.0.v
8. Ísak Orri 3.v
9. Guðni Viðar 3.v
10. Benidikt Þórisson 3.v
11. Þorsteinn Már 3.v
12. Jón Hreiðar 3.v
13. Baldur  3.v

Aðrir minna, en alls tóku 28 þátt í eldri flokki.

Yngri flokkur úrslit:

1. Bjartur Þórisson 4. v af 4
2. Einar Brynjarsson 3.v
3. Jón Sigurður 2.5.v
4. Bergþóra Helga 2. v
5. Jóna María 2. v
6. Ragna Rúnarsdóttir 1.5  v.
7. Hrafnkell 1. v.
8. Guðjón Sævarsson 1.0 v
9. Þorbergur
10. Þórður 


Peðaskák úrslit:

1. Jósef Omarsson (2011) 4.0 v 
2. Vilborg 2. v 
3. Nicol Dís (2012)  0. v 


Aukaverðlaun:


Besti Víkingurin eldri:  Jón Hreiðar Rúnarsson
Stúlknaverðlaun:  Bergþóra Helga Gunnarsdóttir
Besti Víkingurinn yngri:  Einar Brynjarsson
Bestur 2001: Aron Þór Mai
Bestur 2003: Alexander Þór Mai
Bestur 2005:  Róbert Luu
Bestur 2006:  Gabríel Sær Bjarnþórsson
Bestur 2007: Adam Ómarsson
Bestur 2008: Bergþóra Helga Gunnarsdóttir
Bestur 2009: Bjartur Þórisson
Peðaskák 2010 eða síðar:  Jósef Omarsson (2011)