Ritstjóri hefur valið skákmenn ársins hjá Víkingaklúbbnum fyrir árið 2019. Í Víkingaskákinni varð snúið, því ritsjórinn velur sjálfan sig. Tvö Víkingaskákmót voru haldin á árinu og vann undirrtaður þau bæði. Skákmaður ársins hjá Víkingaklúbbnum er hinn efnilegi Einar Dagur Brynjarsson. Einar sem fæddur er árið 2009, hefur verið mjög duglegur að mæta á æfingar í vetur, ekki bara í Víkinni, heldur einnig hjá Breiðablik og TR. Eijnar kórónaði árangur sinn á árinu með því að verða Íslandsmeistari barna 10. ára og yngri. Jón Viktor Gunnarsson var einnig fyrir valinu, þar sem hann vann nokkratitla, m.a Íslandsmeistari í hraðskák og Íslandsmeistari í Fischer Random.
Ritstjórinn og formaðurinn óskar öllum Víkingaskákmönnum gleðilegs árs og friðar og von um farsæld og gott gengi í leik og starfi.
Ritað 3. febrúar 2020 á Hringbraut
Gunnar Fr Rúnarsson
formaður
Monday, February 3, 2020
Subscribe to:
Posts (Atom)