Saturday, December 12, 2015

Íslandsmótið í Víkingaskák 2016

Minningarmótið um Magnús Ólafsson - Íslandsmótið í Víkingaskák 2016 fer fram í húsnæði Skáksambands Íslands fimmtudaginn 26. mai kl. 20.00. Tefldar verða 7 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Mótið eru öllum opið og það kostar ekkert að vera með. Boðið verður upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.
Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks til að tryggja þáttöku. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig í tölvupósti á netfangið Víkingaklubburinn(hjá)gmail.com. Veitt verða sérstök veðlaun fyrir efstu sætin, auk þess sem sérstök veðlaun fyrir besta árangur kvenna, unglinga og öldunga.

keppt verður í B-flokki (Áskorendaflokki), fyrir þá keppendur sem eru stigalausir eða eru að tefla Víkingaskák í fyrsta skipti.  

Verðlaunaféð skiptist þannig:  1. verdlaun.  15 þúsund  2. verdlaun, 10 þúsund, þriðju verðlaun 5000 þúsund.  1, verðlaun í unglinga og kvennaflokki eru 7000  þúsund krónur, 5000 krónur fyrir annað sætið og 3000 krónur fyrir þriðja sætid.

Núverandi Íslandsmeistari er karla er Gunnar Fr Rúnarsson, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir er núverandi Íslandsmeistari kvenna.  Skákstjóri á mótinu verður Haraldur Baldursson.

Reglurnar í Víkingaskák má nálgast hér:
Ùrslit á Íslandsmótinu í Víkingaskák 2015 má sjá hér:
Ùrslit á Íslandsmótinu í Víkingaskák 2014 má sjá hér:
Ùrslit á Íslandsmótinu í Víkingaskák 2013 má sjá hér:
Úrslit á Íslandsmótinu í Víkingaskák 2012 má sjá hér:
Úrslit á Íslandsmótinu í Víkingaskák 2011 má sjá hér:
Úrslit 2010 hér:
Úrslit 2009 hér:

No comments:

Post a Comment