Minningarmótið um Magnús Ólafsson - Íslandsmótið í Víkingaskák 2011 fer fram í húsnæði
knattspyrnufélagsins Þróttar Laugardal (Engjavegi 7)
miðvikudaginn 30 nóvember kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 15 mínútna umhugsunartíma. Mótið eru öllum opið og það kostar ekkert að vera með. Boðið verður upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds. Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks til að tryggja þáttöku. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig í tölvupósti á netfangið Víkingaklubburinn(hjá)gmail.com, eða hjá Gunnari Fr. gsm; 8629744. Veitt verða sérstök peningaveðlaun fyrir efstu sætin, auk þess sem sérstök veðlaun fyrir besta árangur kvenna, unglinga og öldunga.
Verðlaun eru sem hér segir:
- 1) 25.000 kr.
- 2) 20.000 kr.
- 3) 15.000 kr.
No comments:
Post a Comment