Hinn öflugi norðanmaður Tómas Veigar Sigurðsson gekk nýverið í raðir Víkingaklúbbsins, en Tómas var áður félagi í Skákfélagi Akureyrar. Tómas er gífurlega öflugur skákmaður og vann m.a nokkra frækna sigra á þessu ári á mótum í sínu gamla félagi S.A, en hann vann TM mótaröðina snemma á þessu ári. Hann varð svo Bikarmeistari S.A í mai, Skákmeistari Skákfélagas Akureyrar í október og svo varð hann Atskaḱmeistari Akureyrar í nóvember. Tómas hefur gríðarlega reynslu og mun vonandi vinna frækna sigra fyrri Víkingaklúbbinn í haust, en hann getur ekki telft á Íslandsmóti skákfélaga í mars, vegna þess að hann tefldi fyrir sitt gamla félag í fyrri hluta keppninnar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment