Thursday, August 10, 2017

Kringluskákmótið 2017

Kringluskákmótið 2017 fer fram fimmtudaginn 24 ágúst, og hefst það kl. 17:00. Mótið fer fram í Kringlunni, en að mótinu stendur Víkingaklúbburinn skákfélag, með aðsetur í Víkingsheimilinu í Víkinni, í samstarfi við markaðsdeild Kringlunnar.  Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar muni taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is (Guli kassinn). Hámarkfjöldi keppenda er 40 manns og því er ekki hægt að tryggja þátttöku nema að skrá sig til leiks. Einnig er hægt að skrá sig í síma 8629744 (Gunnar). Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppendur draga fyritækjaspjald úr hatti, sem keppandinn síðan teflir fyrir í mótinu.  Skráningu líkur kl 12.00 að hádegi á mótsdag. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.  Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. 


1. verðlaun 15.000 kr.
2. verðlaun 10.000 kr. 
3. verðlaun 5000 kr.  


Sigurvegarinn mótsins hlýtur titilinn Kringuskákmeistari 2017 og forlátan verðlaunagrip að auki.  Þrjár efstu konur og þrjú efstu ungmenni 12. ára og yngri (fædd 2005 og yngri) fá sérstök verðlaun (Verðlaunagrip fyrir efsta sætið og verðlaunapeningur fyrir annað og þriðja sætið).  Núverandi Kringlumeistari er Ingvar Þór Jóhannesson, sem telfdi fyrir Verkís.   Skákstjórar á mótinu verða Haraldur Baldursson og Kristján Örn Elíasson. 

Úrslit Kringlumótsins 2015 hér: og hér:
Kringlumóitið 2015, myndaalbúm hér:
Úrslit Kringlumótsins 2016 hér:







No comments:

Post a Comment