Friday, November 21, 2014

Jólamót Víkingaklúbbsins 2014

Jólamót Víkingaklúbbsins fyrir börn og unglinga verður haldið í Víkinni Víkingsheimilinu miðvikudaginn 10. desember. Í A og B flokki verða telfdar 6. umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma á mann, en í C flokki verða telfdar 4. umferðir með 7. mínútur á mann.  Mótið hefst mótið kl. 17.00. Allir krakkar eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Skákstjóri verður hinn reynslumikli Stefán Bergsson. 

Keppt verður þrem aldursflokkum á mótinu.  

A flokkur keppendur fæddir 1999-2004 (5-10 bekkur).
B flokkur keppendur fæddir 2005-2007 (2-4 bekkur).
C flokkur keppendur fæddir 2008 og yngri, PEÐASKÁK (1. bekkur).  Þeir keppendur sem fæddir 2008 og yngri sem vilja taka þátt í B flokki geta það að sjálfsögðu.

Einnig verða sérstök stúlknaverðlaun auk þess sem veitt verða fjöldi aukaverðlauna. Barna og unglingaæfingar voru vikulega í vetur, en næsta æfing eftir jólafríð verður miðvikudaginn 14. janúar og verða æfingar vikulega fram á vor. 
Skráning á mótið fer m.a fram á netfangið:  vikingaklubburinn(hjá)gmail.com

Í fyrra sigraði Vignir Vatnar Stefánsson eldri flokk, en Óskar Víkingur Davðsson sigraði í yngri flokki

Úrslit jólamótsins 2013 hér:

Heimilisfang hér: 

Knattspyrnufélagið Víkingur


No comments:

Post a Comment