Saturday, September 3, 2016

Meistaramót Víkingaklúbbsins í golfi 2016

Meistaramót Víkingaklúbbsins í golfi 2016 verður haldið á Bakkakotsvelli í Mosfellsbæ, laugardaginn 17. september og hefst mótið kl:9.50 (fyrsta holl).  Mæting kl.  9.30.  Spilaðar verða 18. holur (tveir hringir) og keppt verður bæði í höggleik án forgjafar og punktakeppni með fullri forgjöf. Sigurvegarinn í höggleik hlýtur sæmdarheitið: Golfmeistari Víkingaklúbbsins 2016. 

Einnig verður á sama móti haldið liðakeppni milli skákfélaga, en veitt verða verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur liða, en tveir keppendur eru í hvoru liði (Mega vera fleirri, en tvö bestu skor gilda).  Liðið sem sigrar á fæstum samanlögðum höggum hlýtur titilinn Íslandsmeistari Skákfélaga í golfi 2016. Þau lið sem reiknað er með að mæti til leiks, eru m.a:

Víkingaklúbburinn (liðstjóri, Gunnar Fr. Rúnarsson), Skákfélag Vinjar (Ingi Tandi Traustason), Breiðablik (Halldór Grétar Einarsson), Huginn, TR og Kristján Örn frá Skákfélaginu mætir vonandi.  Mótið er opið öllum golfskákmönnum.  Reiknað er með að keppendur verði á bilinu 12 -16 (3-4 holl).  

Mótsgjald verður c.a 3500 kr, en það skýrist frekar þegar nær dregur.  Skráning fer fram á facebook, gsm: 8629744 (Gunnar), eða á netfangið gunnarrunarsson@gmail.com.

Um kl. 15.00 verður haldið niður í Skáksamband, þar sem fer fram 5. mínútna hraðskákmót (9. umferðir), þar sem keppt verður í samanlögðum árangri í golfskák, með og án forgjafar.  Nánari upplýsingar um mótið gefa Gunnar Fr. Rúnarsson (gsm:  8629744) og Halldór Grétar Einarsson (gsm:  6699784).

Skákstjóri og tæknimeistari mótsins verður Halldór Grétar Einarsson.  

Úrslit mótsin 2015 hér:
Úrslit mótsins 2014 hér: og hér:   

No comments:

Post a Comment