Undankeppni fyrir Reykjavík Barna Blitz verður miðvikudaginn 3. april kl. 17.15 í Víkingsheimilinu.
Tefldar verða sex umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. þrír efstu komast í úrslitin sem verða tefld verða samhliða Reykjarvíkurskákmótinu í Hörpu, sem fram fer 8-16 april. Úrslitin fara fram í Hörpu laugardaginn 13. april. Til mikils er að vinna því einungis sextán keppendur fá þátttökurétt á sjáfri úrslitakeppninni, þar af eru þrír frá móti Víkingaklúbbsins. Hin félögin í Reykjavík (og nágrennis) sem halda undanrásir eru "væntanlega" Skákdeild Fjölnis, Taflfélagið Huginn, Taflfélag Reykjavíkur og jafnvel fleirri félög utan Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar um keppnina hér:
Úrslit á barnablitz 2018 í Víkingsheimilinu hér:
Næstu miðvikudagsæfingar:
3. april: Barnablitz
10. april: æfing
17. april: pásksafrí
24. april: æfing
1. mai: frí
8. mai: æfing
15, mai: æfing
22. mai: æfing
29. mai: Vormót Víkingaklúbbsins