Minningarmótið um Magnús Ólafsson - Íslandsmótið í Víkingaskák 2009
Minningarmótið um Magnús Ólafsson - Íslandsmótið í Víkingaskák 2009 fer fram í húsnæði Vinjar, Hverfisgötu 47 í Reykjavík miðvikudaginn 28 október kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 15 mínútna umhugsunartíma. Mótið eru öllum opið og það kostar ekkert að vera með. Boðið verður upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds. Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks til að tryggja þáttöku. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig í tölvupósti á netfangið Víkingaklubburinn(hjá)gmail.com.
Æfingamót vegna Meistaramóts verður haldið í húsnæði Vinjar, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 19 október kl. 13.00 og aukaæfing verður á 108 bar. Ármúla 7 Reykjavík, þriðjudaginn 20 október og hefst hún stundvíslega kl. 20.00Verðlaun eru sem hér segir:
- 1) 20.000 kr.
- 2) 15.000 kr.
- 3) 10.000 kr.
- 4) 5.000 kr.
- 5) 4.000 kr.
Aukaverðlaun:
- Efsti unglingurinn 16 ára og yngri: 5.000 kr.
- Efsta konan: 5.000 kr.
- Efsti öldungurinn 50 ára og eldri : 5.000 kr.
No comments:
Post a Comment