Víkingaklúbburinn og Taflfélag Reykjavíkur mættust í 8-liða úrslitum
Hraðskáksmóts taflfélaga fimmtudaginn 23. ágúst í félagsheimili TR. Viðureignin var heimaleikur Víkingaklúbbsins, en TR-ingar lánuðu húsnæði sitt. Bardaginn endaði með nokkrum öruggum sigri Víkingaklúbbsins, en
lokastaðan varð 45.5 vinningar gegn 26.5 vinningum TR-inga. Viðureignin var þó mjög jöfn í upphafi. TR mætti með grjótharða sveit og Arnar Gunnarsson, Snorri Bergsson og Daði Ómarsson byrjuðu vel. Snorri lagði m.a Hannes Hlífar í fyrstu umferð og fyrstu tvær viðureignirnar enduðu jafnar 3-3. Í þriðju umferð sigraði svo Vikingaklúbburinn 5-1 og eftir það létu Víkingar forustuna ekki af hendi.
Viðureignirnar fóru eftirfarandi:
3-3, 3-3, 5-1, 4-2, 2.5-3.5, 5-1, 4.5-1.5, 4-2, 4-2, 3.5-2.5, 3-3, 4-2.
Samtals: 45.5-26.5 fyrir Víkingaklúbbinn, en staðan í hálfleik var 22.5-13.5 fyrir Víkinga.
Björn Þorfinnsson var með besta skor Víkinga 9 v. af 12, Hannes Hlífar var með 8.5 v. af 12 og Davíð Kjartansson var með 8 v. af 10. Bestur TR-inga var Arnar Gunnarsson með 10.5 v. af 12, en Júlíus Friðjónsson var með 4.5 v. af 12 og Snorri Bergsson var með 4 v. af 7.
Videó af viðureign hér:
Besti árangur Víkingaklúbbsins:
Björn Þorfinnsson 9. v af 12 (75%)
Hannes Hlífar Stefánsson 8.5 v. af 12 (71%)
Davíð Kjartansson 8. v af 10 (80%)
Magnús Örn Úlfarsson 8.v af 12 (66%)
Ólafur B. Þórsson 7.5 v. af 12 (63%)
Gunnar Freyr Rúnarsson 2 v af 3 (66%)
Þorvarður Fannar Ólafssson 2.v af 7
Stefán Þór Sigurjónsson 0.5.v af 4
Haraldur Baldursson og Jónas Jónasson tefldi ekki að þessu sinni!
Besti árangur TR:
Arnar Gunnarsson 10.5. v af 12 (88%)
Júlíus Friðjónsson 4.5. v af 12 (38%)
Snorri Bergsson 4. v af 7 (57%)
Daði Ómarsson 4 v. af 12
Ríkharður Sveinsson 2.5 v. af 12
Eiríkur Björnsson 1. v af 9
Björn Jónsson 0. v af 3
Óttar Felix Hauksson 0. v af 2
Skotta 0. v af 3
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment