Sunday, September 8, 2013

Hjörvar Steinn Grétarsson gengur í Víkingaklúbbinn

Alþjóðlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2505) einn stigahæsti og efnilegasti íslenski skákmaður landsins gekk í dag til liðs við Víkingaklúbbinn, en Hjörvar var áður félagi í Taflfélaginu Helli.  Hjörvar hefur verið að bæta sig mikið síðustu árin, er með tvö stórmeistaraáfanga af þrem og hefur þegar náð stigalágmarkinu fyrir stórmeistaratitilinn, 2500 elóstig.  Hjörvar á eftir að koma sterkur inn á Íslandsmót skákfélaga, en Víkingaklúbburinn stefnir á að verja Íslandsmeistaratitil sinn frá því í vor.

No comments:

Post a Comment