Thursday, December 5, 2013

Jólamót Víkingaklúbbsins

Jólamót Víkingaklúbbsins fyrir börn og unglinga verður haldið í Víkinni Víkingsheimilinu miðvikudaginn 11. desember. Tefldar verða 5. umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann og hefst mótið kl. 17.15. Allir krakkar eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Keppt verður tveim flokkum: Flokki fæddra 1998-2004 og flokki fæddra 2005 og yngri. Einnig verða sérstök stúlknaverðlaun auk þess sem veitt verða fjöldi aukaverðlauna. Barna og unglingaæfingar voru vikulega í vetur, en næsta æfing eftir jólafríð verður miðvikudaginn 15. janúar og verða æfingar vikulega fram á vor.
Skráning á mótið fer m.a fram á netfangið:  vikingaklubburinn(hjá)gmail.com

Heimilisfang hér: 

Knattspyrnufélagið Víkingur


No comments:

Post a Comment