Sunday, December 28, 2014

Jólamót Víkingaklúbbsins 2014

Jólamót Víkingaklúbbsins verður haldið þriðjudaginn 30. des í húsnæði Skáksambands Íslands og hefst það kl 19.30. Teflt verður bæði skák og Víkingaskák. Fyrst 7. umf skákmót með 5 mínútna umhugsunartíma, en eftir það verða 7. umferðir í Víkingaskák, þs 7 umferðir 7. mínútur.  Verðlaun í boði fyrir þrjú efstu sæti og ókeypis veitingar, m.a Víkingamjöður.  Ekki er nauðsynlegt að taka þátt í báðum mótunum og þeir sem ætla að tefla einungis Vîkingaskák mæta ekki seinna en kl 21.30.  Víkingaskákmótið er jafnframt Ìslandsmótið í Víkingahraðskák.  Einnig eru veitt sérstök verðlaun fyrir besta árangur í báðum mótunum, en sá sem er með besta árangurinn úr báðum mótunum er jafnframt Íslandsmeistari í tvískák.

Skráning á mótið fer m.a fram á netfangið: vikingaklubburinn(hjá)gmail.com

Mótið 2013 hér:
Mótið 2012 hér:
Mótið 2011 hér: 
Mótið 2010 hér:
Mótið 2009 hér:

No comments:

Post a Comment